Örvitinn

Smáskammtalækningar

Á Vantrú er kominn pistill um allt sem þú þarft að vita um smáskammtalækningar (hómópatíu) Heiðurinn af þessari vönduðu þýðingu á Lárus og hann á hrós skilið, afar mikilvægt að fá loks almennilegan pistil um þetta kjaftæði sem virðist vera að að ryðja sér til rúms hér á landi.

skottulækningar vísanir
Athugasemdir

Lárus Viðar - 03/04/06 16:30 #

Ég þakka hrósið :) Það var líka kominn tími til að fá smá gagnrýna umræðu um hómópatíu á Netið. Svo virðist sem að um 95% af því sem hægt er að finna um þetta kukl sé lof um það hvað þetta er allt saman dásamlegt, heildrænt, mannlegt og virkar svo óhemju vel.

Ríkisvaldið hefur síðan bætt gráu ofan á svart með því að leyfa þessu fólki að kalla sig græðara fyrir að selja fólki vatn i flöskum á uppsprengdu verði.

Erna - 04/04/06 17:58 #

Fín grein! En ég segi nú bara, hver þarf á smáskammtalækningum að halda þegar hann/hún getur farið í DNA heilun...

Matti - 04/04/06 19:29 #

Einu sinni ætlaði ég að verða ríkur á smáskammtafjarheilun, þ.e.a.s. ég myndi ekki gera neitt úr fjarlægð. DNA heilun minnir dálítið á þá hugmynd mína :-)

En í raun eru smáskammtalækningar alveg jafn klikkuð hugmynd og DNA heilun, samt er lítið hlegið að því.