Örvitinn

Æi af hverju geri ég þetta

Inga MaríaTíu mínútum eftir miðnætti er ég strax farinn að sjá eftir því að hafa sent inn mynd í keppni á ljósmyndakeppni. Fyrstu einkunnir skelfilegar og ég rifja upp að ég virðist ekki eiga heima á þessum vef (þrátt fyrir á tíðum ágætan árangur), nenni einfaldlega ekki að eyða tíma í að brenna ský, finnst það ljót og leiðinleg klisja!

Aftur á móti hef ég fikrað mig áfram á flickr, þar sem ég hef verið að prófa hópa sem ganga út á einkunnagjafir. Það virkar þannig að maður sendir mynd í hópinn og gefur svo síðustu fimm myndum á undan einkunn. Reyndar voru einkunnir þar í hærra lagi svosem, en maður fær þó feedback. Inga María. Það er reyndar ansi góð æfing að gefa myndum einkunnir og fjalla um þær. Hef því verið að gefa nokkur komment á flickr í kvöld. Maður lærir rosalega mikið á því að rembast við að koma orðum að því sem manni finnst gott og ekki alveg jafn gott við annarra myndir.

Hvað um það, ég setti inn myndir á myndasíðuna, er ánægður með þessar tvær af Ingu Maríu og Kollu. Myndi eflaust fá lágt fyrir þær báðar á lmk.is :-) (flestir myndu draga myndina af Kollu niður um svona 4 heila vegna þess að það er oflýstur blettur á hárinu, ég get lagað þetta í Raw vinnslu en nenni því ekki)

Sótti ókeypis uppfærslu af Dxo Optics í dag, nú er kominn stuðningur við Sigma 10-20 linsuna. Þarf að leika mér meira með hana á næstunni.

dagbók