Örvitinn

Einstæður faðir

Stóru stelpurnar fara til London í dag, ég verð einn í kotinu með minni stelpurnar fram á þriðjudag. Get varla sagt litlu stepurnar í dag, Kolla var í annarri heimsókn í grunnskóla í gær og maður finnur vel fyrir því að á næsta ári fer hún í skóla.

Reyndar byrja ég ekki mjög vel sem einstæður faðir, þarf að fá pössun í kvöld en reyndar bara fram að kvöldmatartíma. Er að fara í sjóstangarveiði með vinnunni milli hálf fimm og átta. Jóna Dóra æltar að sækja stelpurnar fyrir mig á leikskólann og bjóða þeim í kvöldmat.

Svo þurfum við að finna okkur eitthvað að gera um helgina. Ég var að spá í að vinna í garðinum ef veður verður þokkalegt.

fjölskyldan