Þessi bakarísfrásögn Hildigunnar er frekar niðurdrepandi. Maður veit alveg að þessir rasistar eru til hér á landi og fleiri en margir halda. En ég hélt að þetta lið væri ekki svo vitlaust að halda að það gæti látið svona í kringum annað fólk.
Sjá líka: Nasistakökur og tíuþúsund dagar
Nett þroskaheftur gaur! Það er magnað hvað sumt fólk (rasistiar/nýnasistar) geta orðið sturlaðir af hatri gagnvart öðrum hóp sem hefur ekki gert þeim neitt - sorglegt!
Nær vikulega gerist eitthvað einhvers staðar sem sannar eftirfarandi fyrir mér: Rasismi er miklu algengari á Íslandi en fólk heldur. Miklu.
Því miður en svona er það nú bara.
Nú þarf maður að fara að hrinda í framkvæmd gömlu hugmyndinni um baráttusamtökin Alþjóðlegt Ísland. Ekki vanþörf á, sýnist mér.
Ef lögregla er eitthvað treg að mæta á vettvang þegar svona stendur á mætti benda á að brot gegn 180. grein almennra hegningarlaga nr 19. frá 1940 sé í uppsiglingu.
Greinin hljóðar svo: "Hver sem í atvinnurekstri eða þjónustustarfsemi neitar manni um vörur eða þjónustu til jafns við aðra á grundvelli þjóðernis hans, litarháttar, kynþáttar, trúarbragða eða kynhneigðar skal sæta sektum eða fangelsi allt að 6 mánuðum. Sömu refsingu varðar að neita manni um aðgang til jafns við aðra að opinberum samkomustað eða öðrum stöðum sem opnir eru almenningi."
|
www.flickr.com
|