Örvitinn

Úff

Liverpool spilar ekki einfalda úrslitaleiki, þetta var rosalegt. Ég er alveg búinn á því. Jöfnunarmark Gerrard á lokamínútum leiksins verður lengi í minnum haft.

Ég mætti snemma á Players til að ná sæti. Það var búið að taka flest borðin frá en ég fékk þó borð í innri salnum.

Er að fara út á lífið, hitti strákana á eftir. Við fáum okkur eitthvað að borða og kíkjum svo líklega í bæinn.

En ég er ánægður með daginn, röddin er farin en það er við hæfi.

boltinn