Þetta var ekki góður leikur. Það er náttúrulega rugl hjá Ericsson að stilla þessu svona upp, með því að láta Steven Gerrard, besta knattpspyrnumann Englendinga, spila varnarhlutverk á miðjunni er allur broddur úr liðinu. Lampard sést ekki nema þegar hann skýtur á mark, annars er framlag hans ekkert á miðjunni. Það var því afar lítið að gerast á miðjunni hjá Englendingum. Ég myndi setja varnarsinnaðan miðjumann, t.d. Carrick þarna inn og færa Gerrard framar.
Crouch mátti ekki hreyfa sig í þessum leik án þess að dómarinn dæmdi á hann, djöfull er pirrandi að sjá svona dómgæslu. Nóg fyrir varnarmenn að láta sig detta og þá er flautað á stóra manninn.
Eins og þið sjáið hef ég aðallega áhuga á Liverpool leikmönnum enska liðsins. Vonandi verða næstu leikir Englendinga skemmtilegri.
|
www.flickr.com
|