Bara svo það sé skjalfest, þá held ég með Spánverjum i þessari heimsmeistarakeppni. Þeir hafa nefnilega hagstæðasta Liverpoolhlutfall* allra liða í keppninni.
Ég spái því að sjálfsögðu að Spánverjar vinni á eftir, 3-1, Garcia skorar tvö! Þess má geta að ég hef bara náð að spá einu sinni um rétta markatölu það sem af er HM, var með 1-0 fyrir Brasilíu í gærkvöldi.
*Fjöldi Liverpool leikmanna = LIV, Fjöldi Chelsea og ManU leikmanna = SHT (LIV || -1 ef FL == 0 og SHT > 0 || 1) / (SHT || 1 ef SHT = 0). Að sjálfsögðu verður deiling að margföldun ef LIV == 0 og SHT > 0 .. eða eitthvað í þessa áttina, hef ekki debuggað þetta :)
|
www.flickr.com
|