21.06.06

Fótbolti í sól og blíðu

Spilaði fótbolta í hádeginu á Framvelli. Fyrsta skipti í langan tíma sem ég spila útibolta. Það er ekki hægt að líkja því saman að spila á góðum gervigrasvelli eða grasvelli annars vegar og innivelli hinsvegar. Veðrið er frábært, sól og blíða.

Ég er í agalega lélegu formi en fæturnir á mér entust þó út tímann. Var reyndar orðinn tæpur í kálfunum í lokin en tognaði ekki, sem er ágætt.

Nú þarf ég bara að rembast við að komast í skárra form.

21.06.2006 14:37 boltinn
Athugasemdir



ath. póstfangið birtist ekki á síðunni

má sleppa

(næstum öll html tög virka, einnig er hægt að nota Markdown rithátt)

Trackback url: http://www.gmaki.com/cgi/mt-tb.cgi/491
Mynd sem Kolla teiknaði af mér

Nýjar athugasemdir

www.flickr.com