Húsgögn mynduð

Ég og Davíð vorum að ljósmynda húsgögn í kvöld. Held þetta komi ágætlega út en reyndar á ég eftir að vinna allar myndirnar. Ég er nokkuð bjartsýnn á að þær verði betri en myndirnar sem fyrir eru :-)

Fékk Davíð til að sitja fyrir með mér að loknu verki (tja, reyndar er örlítið eftir annað kvöld).

Matthías Ásgeirsson og Davíð Torfi Ólafsson

29.06.2006 01:34 myndir
Athugasemdir

Matti - 29/06/06 08:42 #

Ég þakka ábendingar sem bárust í athugasemd sem ég hef fjarlægt. Bið fólk um að tjá sig undir nafni, a.m.k. ef það ætlar að kommenta á holdafar mitt (sem ekki er til fyrirmyndar).

Davíð - 01/07/06 11:53 #

.... er það bara ég eða virkar vinstri fóturinn á mér stærri og jafnvel eiginlega óeðlilega stór? Matti er þetta breiðlinsan? Annars hefur það færst í vöxt að mig þarf að mynda með "breið"linsum eftir því sem árunum og kílóunum fjölgar hmmm.

Matti - 01/07/06 12:32 #

Jú, þetta er bjögun útaf gleiðlinsunni, allt sem er í jaðri myndar teigist. Til að losna við svona bjögun þarf meira pláss, þ.e.a.s. maður þarf að komast lengra frá viðfangsefninu.

Já, ég kannast við þetta vandamál sem þú talar um. Ég er farinn að þurfa meiri photoshop vinnslu sjálfur með aldrinum :-P




ath. póstfangið birtist ekki á síðunni

má sleppa

(næstum öll html tög virka, einnig er hægt að nota Markdown rithátt)


Athugið að það getur tekið um mínútu að setja athugasemd inn, sýnið biðlund.
Trackback url: http://www.gmaki.com/cgi/mt-tb.cgi/499
Mynd sem Kolla teiknaði af mér

Nýjar athugasemdir

www.flickr.com