Örvitinn

Skutl

Í dag skutlaðist ég með Dan Barker, Annie Laurie Gaylor og dóttur þeirra á Leifstöð. Sótti þau á Hótel Centrum klukkan hálf tvö og skilaði þeim út á flugvöll 55 mínútum síðar.

Afskaplega ánægjulegur ökutúr, við spjölluðum mikið saman um trúmál, efgahyggju, skottulækningar, félagið þeirra og svo að sjálfsögðu Ísland, en þau ferðuðust hringinn í síðustu viku og voru bara ansi hrifin, fyrir utan verðlagið á súpunni í Eden. Heyrðist á þeim að einna merkilegast hefði verið að gista í Skaftafelli og rölta þar um en þau voru líka hrifin af Landamannalaugum og Mývatni, fyrir utan mýið.

Í tilefni skutls þrifum við bílinn í morgun. Það var ekki lítið verk get ég sagt ykkur, en gott að vera búinn að því.

dagbók