Örvitinn

Íslamskar konur borða spagettí

via God is for Suckers!

Þess má geta að atriðið er sviðsett, ég vissi það ekki þegar ég setti þetta inn.

feminismi íslam
Athugasemdir

Eyja - 14/07/06 17:49 #

Getur verið að þetta sé sviðsett? Þetta er svo hrikalega fíflalegt.

Matti - 14/07/06 18:03 #

Ég get ekki útilokað að þetta sé sviðsett, óskaplega mörg þeirra myndbanda sem maður sér á netinu í dag eru einmitt sviðsett.

Uppfært
Samkvæmt athugasemd á God is for suckers er þetta atriði úr breskum grínþætti.

Matti - 14/07/06 18:04 #

En mér finnst þetta samt fyndið og um leið dálítið sorglegt! Ég meina, einhvernvegin hljóta þessar konur að þurfa að borða, nema þær borði bara heima hjá sér. Spurning samt hvort þær láti spagettí eiga sig.

frelsarinn - 14/07/06 19:33 #

Öfga íslamistar hafa lausn á því. Konum er einfaldlega ekki hleypt út að borða til að koma í veg fyrir svona vesen. Þess vegna er myndbandið ekki raunverulegt.

Eyja - 15/07/06 00:41 #

Já, væntanlega borða þær heima hjá sér eða þá bara innan um aðrar konur þar sem þær geta þá tekið niður blæjuna.

frelsarinn@gmail.com - 15/07/06 11:27 #

Það er allavega ljóst að konur sem eru látnar klæðast þessum fatnaði geta ekki matast á almannafæri. Þetta er ótrúleg bilun.

Matti - 15/07/06 11:58 #

Tilkynning (afar formlegt á þessum bænum).

Vegna vandræða við uppsetningu á MovableType í 3.31 get ég ekki sett inn nýjar færslur. Er að vinna í þessu máli.

Athugasemdir virka og ég get endursmíðað allar færslur, ég get bara ekki sett inn nýja færslu :-(

Erna - 16/07/06 11:05 #

OK, það er eitt sem pirrar mig pínu við þessa umræðu. Fólk gerir ráð fyrir því að konur séu endilega "látnar" klæða sig svona. Hins vegar er raunveruleikinn sá að þegar konur hafa val, velja margar hverjar að klæðast vestrænum fötum, en viti menn, mjög margar velja líka að klæðast búrka, innan um konur sem ekki gera það. En, ég veit, það er erfitt að ímynda sér að ekki allir vilji temja sér lífstíl vesturlandabúa....

Matti - 16/07/06 11:36 #

Hins vegar er raunveruleikinn sá að þegar konur hafa val, velja margar hverjar að klæðast vestrænum fötum, en viti menn, mjög margar velja líka að klæðast búrka,

Hvað með konur sem "velja" að selja sig eða "velja" að leika í klámmyndum?

Ég hef nefnilega orðið var við þá umræðu að í mörgum tilvikum hafi konur ekki raunverulegt val.

Ég held það sama gildi oft um konur og búrka.