Örvitinn

MovableType 3.31

Þetta virðist vera að virka. Ekki beinlínis hægt að segja að þessi uppfærsla hafi gengið þrautalaust fyrir sig. Endaði með því að þurfa að edita CMS.pm og laga það eftir mínum þörfum (villum). Málið var semsagt að allt virkaði nema ég gat ekki sett inn nýja færslu. Lagaði það með því að fjarlægja þann hluta kerfisins sem sá um að endursmíða færslurnar í kringum þá sem verið var að endursmíða, ég nota ekki þann fítus þar sem stakar færslur hjá mér vísa ekki á færsluna á undan og eftir.

Vonandi virkar þetta áfram.

Komst að því í þessu veseni öllu saman að ég þyrfti að fara að uppfæra serverinn. Hve mikið vesen ætli það sé að uppfæra FreeBSD úr 5.3 í 6.0? Getur maður keyrt slíka uppfærslu án þess að strauja vélina og haldið þannig allri uppsetningu?

En útgáfa 3.31 er Moveble Type er semsagt komin út. Admin viðmót er lítið breytt en þó eitthvað, letur t.a.m. þægilegra. Búið að setja tags inn í kerfið og Widgets sem ég þarf að skoða betur.

movable type