Örvitinn

Stiklur

Það hékk gæs á þvottasnúrunni hjá fjölskyldunni á Hvammstanga, svona eins og til að leggja áherslu á að við værum komin út á land. Ég skilaði brúðkaupsbók til brúðhjónanna rétt rúmu ári eftir brúðkaupið! Heilsaði upp á yngsta fjölskyldumeðliminn í leiðinni, sú vikugamla stúlka verður væntanlega ofvernduð af bræðrum sínum þremur í framtíðinni. Við stoppuðum ekki lengi, brunuðum áfram enda tvö hundruð kílómetrar eftir.

dagbók