Aularnir á skjá1 skiptu of fljótt yfir í auglýsingar og því misstu íslendingar af því þegar kynnt var hverjir höfðu lent í neðstu þrem sætum einhvern tíman í kosningunum og í ljós kom að Magni var eini þátttakandinn sem ekki var í hættu, fékk flest atkvæði.
Þetta er aðal atriðið í þættinum.
Glæsileg frammistaða!
Hvað kaustu Magna oft?
Váá, svo skipta þeir aftur í auglýsingar í lokin þegar það var verið að kveðja Ryan. Hverslags sjónvarpsmennska er þetta?
Hver mörg atkvæði, ég veit það ekki. En miðað við að það tók mig svona 10-15 sek að greiða hvert atkvæði geri ég ráð fyrir að þau hafi verið 2-300 á þessum klukkutíma. Ég var náttúrulega líka að lesa athugasemdir á Vantrú og skoða Liverpool fréttir á sama tíma :-)
Það er náttúrulega hugsanlegt að þeir hafi misst samband við útlönd en það er samt dálítið skrítið að hoppa beint í auglýsingar!
eitthvað var verið að ræða það í dag að þessi þáttur og þessir þættir væru ekki í beinni. upplýsingar um úrslit hefðu verið komin inn á síðu Magna klukkan 11 í gærkvöldi ?? Sel þetta ekki dýrara en ég keypti það.
Þessir þættir eru aldrei í beinni útsendingu. Aftur á móti eru þeir sýndir hér á landi á sama tíma og þeir eru sýndir á austurströnd Bandaríkjanna.
|
www.flickr.com
|