Örvitinn

Síþreyta og doði

Ég get svo svarið að ég er alltaf hálfuppgefinn um þessar mundir. Syfjaður, þreyttur í löppunum og bara búinn á því!

Stelpurnar leika sér í tölvunni, ég þarf að fara að svæfa þær. Fyrst þarf ég að "sjá myndina" sem þær eru að gera en hún er víst ekki tilbúin.

Ég kemst ekki út til að taka myndir af myrkrinu á eftir. Skoða þetta frá svölunum, reyndar sést ekkert mjög mikið þaðan.

Annars er ég latur við að blogga þessa dagana. Tengi það þreytu og doða. Hef samt frá ýmsu að segja - eða reyndar ekki.

Ég þarf að gera eitthvað.

dagbók