Örvitinn

Vantrú borðar börn

Ég skrifaði Vantrúargrein í dag. Það gerist alltof sjaldan, ég þarf að fara að herða mig, sérstaklega nú þegar það virðist vinsælt að saka okkur Vantrúarsinna um tuð og ofstæki.

Vantrú borðar börn

Það er ekkert að því að að fólk gagnrýni Vantrú. Við sættum okkur við alla málefnalega gagnrýni og fögnum því ef einhverjar rangfærslur okkar eru leiðréttar. En það er afskaplega þreytandi að fást við það þegar fólk úti í bæ segir ósatt um málstað okkar og málflutning.

vísanir