Örvitinn

Kominn aftur

Ég er úrvinda og allur lurkum laminn. Kominn í bæinn eftir frábæra helgi. Ég þarf að skrifa ítarlega um helgina en nenni því satt að segja ekki strax. Er búinn að setja inn fáeinar myndir, á eftir að bæta ansi mörgum við.

Grínistarnir tveir halda áfram að bakka hvorn annan upp á netsíðum sínum. Þeir virðast styðjast við "ef við ljúgum nógu oft byrja vonandi allir að trúa lyginni" aðferðina. Spurning hvort eina ráðið sé ekki bara að nota sömu aðferð á þá. Ætli ég fái aðgang að baksíðu Fréttablaðsins og síðdegisþætti Rásar 2 til að ljúga um þessa menn?

dagbók
Athugasemdir

Jón Magnús - 08/10/06 22:03 #

Rasssár?

Matti - 08/10/06 22:05 #

Nei, ekki vitund. Bara stífur í baki og herðum, dálítið þreyttur í fótunum.