Örvitinn

Afmælisbarn dagsins og dugleg skólastelpa

Gyða ÁsmundsdóttirNóvember er afmælismánuður fjölskyldunnar því þrír fimmtu hennar eiga afmæli í mánuðinum. Gyða á afmæli í dag, er rétt rúmlega þrítug. Í tilefni dagsins mun fjölskyldan fara út að borða í kvöld en við erum ekki búin að ákveða hvert verður haldið.

Við fórum í foreldraviðtal með Kollu áðan. Hún fékk óskaplega mikið lof. Er skemmtileg, dugleg og góð, samviskusöm og vinaleg. Við vissum þetta reyndar en það er gaman að heyra þetta líka frá kennaranum hennar :-) Henni líður voðalega vel í skólanum og er greinilega algjört fyrirmyndarbarn.

Gyða fór með Áróru í viðtal hjá hennar umsjónarkennara en ég skutlaði Kollu heim þar sem Gunna var að passa. Það verður fjör á næsta ári þegar við þurfum að ná þremur viðtölum.

fjölskyldan