04.11.06

Veitingastađurinn Madonna

Ég get ekki mćlt međ veitingastađnum Madonna á Rauđarárstíg. Alls ekki.

Viđ skelltum okkur semsagt út í kvöld, vorum ekki búin ađ ákveđa stađ ţegar viđ ókum í bćinn en fengum ţá flugu í höfuđiđ ađ kíkja á Madonnu. Viđ vorum snemma á ferđinni og vorum mćtt korteri fyrir sjö.

Ég pantađi mér spagettí međ kjötsósu (bolognese), Gyđa fékk sér sjávarréttapizzu og viđ pöntuđum hálfmána handa stelpunum. Yfirleitt er ég ekkert rosalega hrifinn af ţessum ódýru ítölsku stöđum í Reykjavík. Mađur fćr ágćtis pasta og pizzur, en ekkert miklu merkilegra en ég elda sjálfur. Oftast er maturinn samt töluvert merkilegri en sá sem bođiđ var upp á í kvöld.

Spagettí međ kjötsósu var hörmung. Ţegar ég fer út ađ borđa á veitingastađ geri ég ţá lágmarkskröfu ađ spagettí sé rétt eldađ. Ég hef ekki séđ ofsođiđ spagettí síđan viđ keyptum spagettí í IKEA og IKEA eru ekki ađ setja neina standarda í matseld hér á landi. Spagettí í réttinum mínum var töluvert ofsođiđ. Mađur á ekki ađ ţurfa ađ panta spagettí al dente, ţannig á ţađ einfaldlega ađ vera. Sósan var tilţrifalítil, svosem ágćtlega krydduđ en ţađ var eitthvađ tómatsósubragđ sem pirrađi mig. Ekki var bođiđ upp á ferskan parmesan ost og enginn piparkvörn var á borđinu. Til ađ bćta gráu ofan á svart var skammturinn frekar lítill.

Pizzan hennar Gyđu var sćmileg. Reyndar var alltof mikill túnfiskur á henni, ţađ hefđi mátt skera hann niđur um svona helming (sem Gyđa gerđi sjálf, hún týndi slatta af túnfisknum af). Ég fékk mér eina sneiđ og túnfiskurinn var alltof ţurr.

Hálfmáninn var ađ mínu mati alltof saltur. Skinkan sýndist mér vera af ódýrustu sort og auk ţess var full mikiđ af henni! Hálfmáninn var ansi stór, ţannig ađ hann dugđi stelpunum vel.

Inga María týndi tréflís úr pizzusneiđ sem hún fékk hjá mömmu sinni og ég tók eitthvađ svipađ, sem ţó gćti hugsanlega hafa veriđ krydd, úr skinkunni úr hálfmánanum. En flísin sem Inga María fann var ekki úr neinu kryddi.

Viđ pöntuđum gos sem var afhent í 250ml flöskum, slíkur fjársjóđur kostar 290.- kr stykkiđ, sem er töluvert dýrara heldur en á mörgum miklu betri stöđum. Verđ á pastaréttum og pizzum er svosem hefđbundiđ miđađ viđ ţessa tegund veitingastađa en réttir dagsins eru verđlagđir eins og stađurinn sé í allt öđrum klassa en hann er. Ég hefđi veriđ til í ađ prófa eitthvađ af ţeim ef ţeir hefđu veriđ a.m.k. ţúsund krónum ódýrari.

Ţjónustan var svosem ágćt. Reyndar vantađi hnífapör og servíettur á borđiđ en ţví var reddađ eftir ađ matur var borinn fram. Ekki var bćtt á vatn nema beđiđ vćri um ţađ, ţá fékk ég litla könnu. Ţjónn sýndi flís úr mat lítinn sem engan áhuga.

Viđ stoppuđum ekki lengi og vorum komin út tćpum klukkutíma eftir ađ viđ mćttum.

04.11.2006 22:10 veitingahús
Athugasemdir

Jonni - 05/11/06 15:50 #

Til ađ bćta gráu ofan á svart var skammturinn frekar lítill.

Minnir mig á Woody Allen:

There's an old joke... two elderly women are at a Catskill mountain resort, and one of 'em says, "Boy, the food at this place is really terrible." The other one says, "Yeah, I know; and such small portions." Well, that's essentially how I feel about life — full of loneliness, and misery, and suffering, and unhappiness — and it's all over much too quickly.

Btw. ţú verđur ađ passa myndirnar sem birtast hérna hćgra megin. Ég er ađ sturlast úr löngun í humar.

Matti - 05/11/06 16:06 #

Ég var einmitt ađ hugsa um ţennan Woody Allen frasa ţegar ég skrifađi setninguna :-)

Varđandi humarinn, ţá á ég um ţrjú kíló af fallegum humar úti í bílskúr. Ţarf ađ hafa humarveislu fyrir fjölskylduna bráđlega.




ath. póstfangiđ birtist ekki á síđunni

má sleppa

(nćstum öll html tög virka, einnig er hćgt ađ nota Markdown rithátt)

Trackback url: http://www.gmaki.com/cgi/mt-tb.cgi/670
Mynd sem Kolla teiknađi af mér

Nýjar athugasemdir

www.flickr.com