Örvitinn

Leitað að vetrardekkjum

Er að leita að vetrardekkjunum mínum. Vetrardekk fylgdu með jeppanum en þegar ég keypti bílinn var mér tjáð að dekkin væru í geymslu hjá Bílkó, þar fundust dekkin aftur á móti ekki. Í dag hafði ég upp á fyrrum eiganda. Hann hafði farið með dekkin (nelgd Cooper vetrardekk á orginal felgum) á bílasöluna þannig að það er ljóst að þeir eru eitthvað örlítið að klúðra málum. Hafði samband við bílasöluna og bíð nú eftir símtali frá gaurnum sem seldi mér bílinn, hann er að vinna í málinu.

Ég er reyndar dálítið svekktur yfir því að dekkin séu nelgd, er eiginlega á móti nagladekkjum í borgarakstri, en við ættum a.m.k. að vera öruggari þegar við keyrum í bústað í vetur - ef það verður vetur. En fyrsta mál er að finna helvítis dekkin, við skulum sjá til hvað kemur úr því.

dagbók