Örvitinn

Afmælisbarn dagsins

Inga MaríaInga María er fimm ára í dag. Fimm ár síðan hún fæddist, rétt rúm fimm ár síðan við fluttum í Bakkaselið.

Hún fékk afmælisgjöfina í morgun og þær systur dunduðu sér við að setja hana saman í morgunsárið. Ég geri ráð fyrir að hún sleppi fimleikum í kvöld svo hún geti leikið sér að nýja dótinu, hún ræður því náttúrulega alveg sjálf.

Aðspurð vildi hún ekki meina að hún fyndi mikinn mun og kannaðist ekki við að vita eitthvað nýtt í dag sem hún vissi ekki í gær.

Inga María valdi TGI Fridays sem veitingastað kvöldsins, þar fær maður nefnilega stjörnuljós á ísinn sinn ef maður er afmælisbarn.

fjölskyldan
Athugasemdir

sirrý - 16/11/06 16:58 #

Til hamingju Inga aftur. Jamm var að lesa færsluna og sá að klukkan var orðin 12 svo ég dreif í þessu :C) Ég mæli með jack danielsborgara held það sé skrifað svona. Hann er bestur.