Örvitinn

Afmæli

Afmælisbarn dagsins er ég, hef lifað í heil þrjátíu og þrjú ár í dag. Húrra fyrir mér. Stelpurnar vöktu mig með afmælissöng, gáfu mér afmælisgjöf - voða fínt úr - og leyfðu mér svo að sofa hálftíma í viðbót.

Við sjáum til hvort eitthvað verður gert í tilefni dagsins, kannski kíkjum við út að borða, kemur í ljós.

dagbók
Athugasemdir

Ósk - 23/11/06 14:02 #

Til hamingju með daginn :)

Már - 23/11/06 16:40 #

Iss, gamlingi! ;-)

Jóna Dóra - 23/11/06 21:49 #

Til hamingju með daginn:o)

sirrý - 23/11/06 21:57 #

Sá ekki þessa færslu áðan svo ég setti kveðjuna í coment hjá píparanum. En alla vega til hamingju með daginn.

Matti - 23/11/06 21:59 #

Takk öll fyrir afmælis og gamlingjakveðjur :-)