Örvitinn

Jólaæfing hjá Ingu Maríu

Inga María á jafnvægissláÍ dag var jólaæfing byrjendahópanna hjá Gerplu. Þá fengu aðstandendur að mæta og horfa á æfingu hjá stelpunum.

Það var mjög gaman að fylgjast með þessu. Inga María var ósköp feimin þegar stelpurnar gengu inn í salinn en þegar æfingarnar byrjuðu hvarf feimnin. Síðustu tuttugu mínúturnar máttu svo allir prófa æfingar, ég lét það alveg eiga sig en Gyða hoppaði aðeins.

Ég tók helling af myndum. Það verður að segjast eins og er, það er frekar erfitt að taka myndir við þessar aðstæður, því þó manni finnist bjart inni í íþróttasalnum er lýsingin lítil. Ég notaði auto-iso fítus myndavélarinnar og stærsta ljósop á 80-200 2.8 linsunni. Margar myndir voru hreyfðar en ég held ég hafi náð nokkrum ágætum myndum.

fjölskyldan myndir