Ég er dálítið þreyttur í hægri öxlinni, næstum því með harðsperrur. Finn alveg fyrir öxlinni ef ég teygi höndina aftur.
Krissi kom með Wii tölvuna sína í vinnuna í gær og leyfði okkur að prufa. Við lékum okkur í keilu, tennis, boxi, golf og hafnarbolta. Þetta er alveg merkilega skemmtilegt. Sérstaklega fannst mér gaman að spila tennis með þessari græju.
Það er hægt að spila þessa leiki með því að sveifla stýripinnanum létt með úlnliðnum en eins og Kottke segir, alvöru karlmenn spila Wii standandi.
Jájá, auðvitað fannst þér skemmtilegast að spila tennis - ég heimta re-match!!! ;)
|
www.flickr.com
|