Örvitinn

Morgunstund

Ég skreið á fætur korter fyrir tíu, snúsaði í fjörtíu og fimm mínútur. Stelpurnar voru ennþá sofandi þegar ég yfirgaf heimilið.

Ég hringdi heim rétt áðan, Kolla svaraði. Það er óskaplega gaman að því hvað börn fullorðnast áberandi í síma! Stelpurnar voru komnar á fætur og þær yngri búnar að fá sér morgunmat. Ætli þær fari ekki að horfa á Áróru spila tölvuleik þar til amma þeirra sækir þær.

dagbók