Örvitinn

Góðir gestir

Eiki, Oddný og Oddný yngriEiki og Oddný komu í brunch í dag, ég eldaði eggjaköku og keypti brauð. Með í för var Oddný yngri, afskaplega sæt og hress lítil stelpa. Kolla og Inga María höfðu gaman af því að leika við hana og henni þótti athyglin ekki slæm, er eflaust vön athygli frá bræðrum sínum.

Eiki og Oddný voru í brúðkaupi í bænum í gærkvöldi og héldu aftur heim á Hvammstanga í dag. Þau keyptu sér ferðatölvu um jólin en Eika og Elmari tókst að gera út af við hana á fyrsta degi! Þau skutluðu tölvunni við hjá mér í gær fyrir brúðkaup og ég lagaði hana.

Þau gáfu mér viský flösku. Ég veit ekki alveg hvort það var fyrir tölvuviðgerðina eða matarboðið - en það skiptir ekki öllu máli - flaskan er vel þegin :-)

dagbók