Örvitinn

Siðlausir lygarar

Það er dálítið skrítið að hlusta á siðlausa lygara. Fólk sem segir ósatt, gerir sér upp sárindi og svarar engum spurningum eða rökum. Venjulegt fólk á erfitt með þetta en það er eins og sumir hafi fengið meiri þjálfun en aðrir í þessari list. Eins og það hafi æft sig í að standa fyrir framan fólk og segja ósatt.

Reyndar er annar möguleiki. Hugsanlega er þetta fólk ekki siðlausir lygarar, kannski er það ósköp einfaldlega stútfullt af ranghugmyndum og sannfært um að þvaðrið sé heilagur sannleikur.

Mætur maður kom með góðan punkt, þessi tiltekna manneskja "minnti á Árna Johnsen þegar hann var gripinn með kantsteinana", það var mikil heift. Nokkuð til í því.

Mér þótti fróðlegt að ekki var hægt að nefna tiltekinn hóp á nafn. Það segir meira um þessa manneskju en þá sem hún deilir við.

dylgjublogg