Örvitinn

Í vinnunni

Er í vinnunni að ganga frá smá verkefni sem þurfti að gerast utan hefðbundins vinnutíma. Lagði mig aðeins (óvart) með Ingu Maríu í kvöld þannig að ég er sprækur.

Gengur reyndar dálítið erfiðlega að horfa á tölvuskjáinn, jafnvel þó ég sé með gleraugun. Sé allt meira og minna tvöfalt. Dálítið pirrandi, þyrfti eiginlega að vera með lepp fyrir hægra auga. Eitthvað virðast gleraugun þó virka betur ef ég pússa þau.

Hvað um það, ég þarf að rumpa þessu af.

dagbók