27.01.07

Kolla veik

Kolla í dagKolla er veik. Var afar slöpp í gær þegar Gyða sótti hana í heilsdagsvistunina. Var með 38° í gærkvöldi og rúmlega það í nótt. Hún fór snemma að sofa en rölti svo hingað niður um ellefu í gærkvöldi. Um eitt í nótt ældi hún dálítið hressilega, en hafði stjórn á öllu og allt rataði í bala og klósett.

Var með rétt tæplega 38° stiga hita í morgun.

Breytir dálítið plönum hjá okkur, stelpurnar ætluðu í bústað með ömmu og afa og við foreldrarnir í matarklúbb. Líklegast kemur Gunna hingað og passar stelpurnar meðan við skreppum í matarboðið.

13:40
Kolla er hress, borðaði ristað brauð og drekkur sprite. Þetta er vonandi liðið hjá.

27.01.2007 11:53 fjölskyldan
Athugasemdir



ath. póstfangið birtist ekki á síðunni

má sleppa

(næstum öll html tög virka, einnig er hægt að nota Markdown rithátt)

Trackback url: http://www.gmaki.com/cgi/mt-tb.cgi/784
Mynd sem Kolla teiknaði af mér

Nýjar athugasemdir

www.flickr.com