27.01.07

Fimm í fótbolta

Við færðum laugardagsboltann fram til þrjú vegna landsleiksins sem er klukkan fimm. Mætingin var frekar döpur, vorum bara fimm sem mættum en við náðum samt að spila frábæran fótbolta. Spiluðum tveir á móti tveimur á eitt mark, fimmti maður í marki. Hver leikur upp á tvo og svo var róterað í liðum og stig talin. Þetta var ótrúlegt puð, það er erfitt að slaka á í fótbolta þegar það eru bara tveir í liði. Tommi var sigurvegari dagsins, með sex stig, ég og Viffi vorum með fimm.

27.01.2007 16:36 boltinn
Athugasemdir



ath. póstfangið birtist ekki á síðunni

má sleppa

(næstum öll html tög virka, einnig er hægt að nota Markdown rithátt)

Trackback url: http://www.gmaki.com/cgi/mt-tb.cgi/785
Mynd sem Kolla teiknaði af mér

Nýjar athugasemdir

www.flickr.com