Inga María var veik í gær og í dag var komið að mér að vera heima a.m.k. hluta úr degi. En áætlanir eiga það til að raskast og í morgun vorum við hjónin bæði fárveik, ég með 39° hita og sársaukafullan haust hósta (þetta tengist hugsanlega 39° hitanum), Gyða með aðeins minni hiti en auk þess með beinverki.
Ég vaknaði klukkan hálf átta, mældi mig og ákvað að leggja mig áfram. Ég og Inga María náðum að kúra í tæpa þrjá tíma, hún sefur enn.
þannig að hér eru 3/5 fjölskyldunnar með pest. Ég Ekki beinlínis það sem ráðgert var.
Leiðinlegt að heyra að þið séuð öll lagst í flensu, sendi ykkur öllum batakveðjur úr Mosfellsbænum.
Leiðinlegt að heyra af veikindunum. Fariði vel með ykkur. Ég vona að ég og mitt fólk sleppum alveg við þessi veikindi. Fariði vel með ykkur
Takk takk.
Þess má geta að hæsta hitamæling hjá mér i dag er 39.5° með munnmæli. Hitinn hjá Ingu Maríu er farinn að lækka aðeins. Gyða var með tæplega 39° rétt áðan.
Þú getur bætt 0,5 við munnmæli til að rétt útkoma náist (það var mér allavega sagt)
|
www.flickr.com
|