Örvitinn

Síðustu tannleysismyndir í bili

Kolla tannlausaJæja, þá held ég að þetta sé komið hjá Kollu í bili. Báðar framtennur í efri góm farnar.

Tönnin var alveg að detta þegar hún fór upp í rúm, en hún hélt áfram að fikta í henni. Kom svo röltandi niður og var þú búin að snúa tönninni hálfhring og orðin dálítið blóðug í framan. Ég hjálpaði henni að ná tönninni úr, eftir að ég var búinn að taka nokkrar myndir.

Hún er óskaplega hamingjusöm með þetta :-)

Það er dálítið merkilegt að ég man ennþá eftir þessari tilfinningu, að snúa tönn úr kjaftinum á mér.

fjölskyldan