Örvitinn

Þvaður

Ég með bindiÞað virðist ekki hafa dugað að vera með vikuflensu um daginn, ég er ekki laus við slappleika og Inga María er afar kvefuð.

Er síðasta færsla ekki búin að vera efst nógu lengi? Það finnst mér. Mea culpa og allt það.

Annars hef ég ekkert að segja. Ekki hef ég nennt að blogga um klám, pólitík eða feminisma undanfarið. Spurning um að gera eitthvað af því, a.m.k. held ég að það sé að verða tímabært að spá eitthvað í stjórnmálum fyrir kosningar. Komast að því hvort ég get kosið einhvern flokk.

En það bíður betri tíma.

Ég er afar sjaldan í jakkafötum, hvað þá með bindi. Ég lagaði hnútinn.

dagbók