Örvitinn

Guðinn sem var ekki þar

Ég mæli sérstaklega með myndbandi dagsins á Vantrú. Þetta er brot úr myndinni The God who wasn't there, en þarna er verið að spá í því hvort Jesús hafi raunverulega verið til.

Ég útiloka alls ekki að Jesús hafi verið til og verið misheppnaður heimsendaspámaður en það er ekki útilokað að það hafi bara alls ekki verið til neinn Jesús.

Mikið yrði ég glaður ef einhver guðfræðingur myndi benda okkur á rangfærslur í þessu myndbandi og færa góð rök fyrir því að það sem í því kemur fram standist ekki, en sennilegra er að það heyrist ekkert frá þeim.

kristni vísanir