Hereford steikhús

Viđ skelltum okkur á Hereford steikhúsiđ í kvöld. Höfum ekki heimsótt ţann stađ áđur.

Vorum fjögur, Áróra er hjá pabba sínum um helgina.

Gyđa pantađi ţriggja rétta matseđil (5.990,-) sem samanstóđ af humar í forrétt, nautalund í ađalrétt og volgri súkkulađiköku í eftirrétt. Ég fékk mér nautacarpaccio (1.690,-) í forrétt og stelpurnar deildu hvítlauksristuđum sniglum (1.390,-) sem ţćr borđuđ međ bestu list.

Ég pantađi Rib eye, 250gr steik (medium rare) í ađalrétt (3.290,-), franskar, bernaissósu og hereford salat (680,-). Stelpurnar deildu lambalund (200gr) (3.980,-). Í desert fékk ég mér líka súkkulađiköku (1.550,-) en stelpurnar vanilluís. Viđ keyptum rauđvín hússins í karöflu (1.890,-), ég fékk mér eitt glas en Gyđa drakk rest!

Kjötiđ var afbragđ. Steikin mín var ekkert rosalega falleg en einstaklega góđ. Lambakjötiđ var líka gott og Gyđa var afar ánćgđ međ steikina sína. Nautacarpaccio fannst mér vel heppnađ. Súkkulađikakan var örlítiđ of mikiđ bökuđ ađ mínu mati. Stelpurnar voru hrifnar af sniglunum en Inga María var ekkert sérlega ánćgđ međ kjötiđ, Kolla borđađi ţađ međ bestu lyst.

Ţjónustan var mjög góđ, stöđugt fyllt á vatnsglös og biđ lítil. Ekkert mál var ađ skipta rétti fyrir stelpurnar og redda annarri sósu á ísinn fyrir Ingu Maríu. Viđ vorum snemma á ferđinni, mćttum klukkan sjö, ţegar viđ fórum kortér fyrri níu var stađurinn fullur.

Viđ borguđum 21.440,- fyrir heimsóknina sem mér finnst ansi mikiđ en ţegar ég skođa reikninginn er ekkert sem mér finnst sérlega dýrt. ţađ kostar bara sitt ađ fara út ađ borđa međ fjölskylduna og leyfa stelpunum ađ borđa alvöru mat. ţađ er samt miklu skemmtilegra heldur en ađ ţćr séu ađ borđa hamborgara eđa pizzu međan viđ fáum okkur steik. Ţeim finnst gaman ađ borđa flottan mat og smökkuđu alla rétti. Viđ borguđum ekkert fyrir ís stelpnanna sé ég ţegar ég skođa reikninginn. Veit ekki hvort ţađ voru mistök eđa bara góđ ţjónusta.

Ég er afskaplega sáttur viđ verđiđ á rauđvíninu. Ţetta var ágćtis rauđvín, á flestum stöđum borgar mađur ađ minnsta kosti ţrjú ţúsund krónur fyrir flösku af ódýru víni.

26.05.2007 22:22 veitingahús
Athugasemdir



ath. póstfangiđ birtist ekki á síđunni

má sleppa

(nćstum öll html tög virka, einnig er hćgt ađ nota Markdown rithátt)

Mynd sem Kolla teiknađi af mér

Nýjar athugasemdir

www.flickr.com