Örvitinn

Allur lurkum laminn

marblettirSvona líta hendurnar á mér út eftir síðustu tvö kvöld. Auk exems er ég marinn og rispaður á báðum höndum. Það sést eiginlega ekki nógu vel á myndinni.

Í fyrrakvöld kom rúmið og ég hélt á því upp með bílstjóranum. Það var alveg fáránlega erfitt, stiginn er frekar þröngur og við þurfum að reisa dýnurnar til að koma þeim upp.

Í gærkvöldi aðstoðaði ég Davíð og Særúnu við flutninga. Það voru líka ágætis átök á köflum og ég rispaði eitthvað. Var alveg uppgefinn þegar ég kom heim. Er að fá harðsperrur um allan líkamann.

Ég er nefnilega dálítill aumingi þessa dagana, fann það vel þegar ég var að berjast við að koma rúminu upp Þarf að taka á lóðunum í sumar.

Góðu fréttirnar eru þær að ég hef sofið afskaplega vel í nýja rúminu.

heilsa