Verðið á enska boltanum hjá Sýn

Ég verða að játa að ég er ekki alveg að átta mig á þessari umræðu á Liverpool blogginu- sé ekki betur en að verðið á enska boltanum muni hækka töluvert.

Til að borga svipað og áður fyrir Sýn og enska boltann (nú Sýn 2), þarf fólk að vera í M12, sem þýðir að það þarf að borga áskrift allt árið, líka yfir sumarið þegar enski boltinn er ekki í gangi.

Um daginn var mér boðið að ganga í M12 með þeim rökum að þá lækkaði mánaðargjald fyrir Sýn. Ég hafnaði því enda sagði ég upp Sýn um leið og Meistaradeildinni lauk, sparnaðurinn fyrir mig hefði ekki verið neinn.

Auðvitað var ljóst að Sýn myndi hafa enska boltann á miklu hærra verði, það er ekkert sem kemur á óvart þarna. Þeir yfirbuðu Skjá 1 til að fá einokunarstöðu fyrir vöru - í raun finnst mér merkilegt að samkeppnisyfirvöld láti þetta fyrirtæki komast upp með þessa tilburði.

28.06.2007 08:30 boltinn fjölmiðlar
Mynd sem Kolla teiknaði af mér

Nýjar athugasemdir

www.flickr.com