Örvitinn

Barnaleg hegðun

Þegar foreldrar (og aðrir) ala upp börn er oft tilefni til að skipta sér af því sem börnin gera - kenna þeim reglurnar og stöðva leikinn þegar hann er kominn út í leiðindi. Börn fatta stundum ekki hvenær þau fara yfir strikið, það þarf að benda þeim á það.

Þannig er oft talað um að börn séu krúttlega einlæg þegar þau eru í raun afskaplega dónaleg - t.d. þegar þau tala um holdafar fólks þannig að það heyrir. Stundum má satt kyrt liggja, þó við getum sagt eitthvað er ekki þar með sagt að við eigum að segja það.

Flestir læra þetta að lokum.

dylgjublogg
Athugasemdir

Eggert - 04/08/07 18:54 #

Á þetta við þegar börn kalla einhvern vitleysing? :)

Matti - 04/08/07 22:39 #

Ég notaði spurningamerki ;-)