Mér finnst það fróðlegt þegar umræður á hinum ýmsu spjallborðum fara út í umræður um umræðuna. Þetta gerist reglulega.
Það er varla hægt að skiptast á skoðunum því fljótlega mætir fólk sem skiptir sér af því að aðrir séu að skiptast á skoðunum og lætur alla vita að því finnist umræðan heimskuleg, tilgangslaus eða leiðinleg.
Það á alveg eftir að klára umræðuna um umræðuna um umræðuna, endurkvæmar umræður eru framtíðin.
|
www.flickr.com
|