Tveir geisladiskar og ein bók

Ég og Inga María skutumst í bæinn meðan Kolla var í ballet. Byrjuðum í 12 tónum þar sem ég keypti geisladisk með I adapt. Svo röltum við í Skífuna á Laugavegi þar sem fjárfest var í disk Sprengjuhallarinnar.

Þvínæst kíktum við í bókabúð þar sem ég náði mér í eintak af God is not great. Ég á ekki von á því að lesa neitt nýtt í þessari bók en Hitchens er stundum hnyttinn og mér rann blóðið til skyldunnar að fjárfesta í bókinni fyrst hún lá frammi í bókabúð hér á landi, nógu oft hef ég tuðað útaf lélegu úrvali af bókum í þessum flokki.

Mér fannst full mikið að borga rúmar 900 krónur fyrir bökusneið á Súfistanum, en þetta hefði víst verið sanngjarnara hefði ég þegið salat með.

11.10.2007 18:55 bækur tónlist
Athugasemdir

Arnold - 18/10/07 00:05 #

Þér hafið lélegan tónlistarsmekk en mér líst vel á bókina :)

Matti - 18/10/07 13:39 #

Tónlistarsmekkur vor er náttúrulega óaðfinnanlegur enda rúmar hann allt frá rómantík til ræflarokks. Það sem ég hef lesið af bókinni er nokkuð gott - en Hitchens er náttúrulega dálítið klikkaður.




ath. póstfangið birtist ekki á síðunni

má sleppa

(næstum öll html tög virka, einnig er hægt að nota Markdown rithátt)

Mynd sem Kolla teiknaði af mér

Nýjar athugasemdir

www.flickr.com