Örvitinn

Hádegisboltinn

Hádegisboltinn gekk ekki vel. Mitt lið náði aldrei að spila almennilega, ég lék eins og bjáni og var byrjaður að tuða og svekkjast eftir fimm mínútur - endaði tímann vælandi útaf dómgæslu.

Suma daga ætti maður að halda sig við pílukast.

En ég svitnaði vel þannig að þetta var ekki til einskis.

boltinn
Athugasemdir

Regin - 19/10/07 18:04 #

Tek undir þetta við vorum vonlausir!

Matti - 19/10/07 22:27 #

Ég man ekki eftir að hafa skorað mark. Hlýt samt að hafa skorað eitthvað, annað getur ekki verið.