Örvitinn

Ég er fífl

SjálfsmyndÁ fyrirlestri í fyrradag var ég ítrekað kallaður fífl af náunga sem telur bólusetningar vera samsæri lyfjafyrirtækja. Mér þótti það í raun upphefð. Ég uppskar nafngiftina eftir að hafa gripið fram í fyrir honum og spurt hvaða rannsóknir hann gæti vísað í máli sínu til stuðnings, en hann vildi meina að engar rannsóknir styddu graf sem sýnir tíðni mislinga í Bandaríkjunum á síðustu öld, fyrir og eftir að bólusetningar gegn þeim hófust. Ég var fífl vegna þess að hann var ekki að halda neinu fram, bara að spyrja spurninga! Þess má geta að þessi náungi greip iðulega fram í á fundinum en kunni bara ekki við að vera truflaður þegar komið var að honum að tjá sig.

Ég hræðist stundum fólk sem virðist vera veikt á geði, það er aldrei að vita upp á hverju það tekur. Þess vegna þykir mér dálítið óþægilegt þegar slíkt fólk persónugerir ýmislegt sem ætti ekki að snúast um mig persónulega. Því miður hefur það oft verið mitt hlutverk að "taka á" fólki sem ekki ræður alveg við sig á ákveðnum vettvangi og því virðist það sumt hafa mig á heilanum. Vonandi heldur það sig bara á netinu. Þetta heldur ekki fyrir mér vöku, ég er vakandi vegna þess að ég er fífl.

Áðan skolaði ég 1,5 lítra mjólkurfernu, opnaði hana alveg að ofan og skar gat í botninn á henni. Stakk svo SB-600 flassinu í gegnum botninn og prófaði að taka ljósmyndir með því að stilla flassinu upp til hliðar og fjarstýra frá myndavélinni. Þetta var semsagt ákaflega ódýrt og hallærislegt snoot. Tók meðal sjálfsmyndina með færslunni.

Athugasemdir

Bjarni - 23/11/07 11:21 #

Ég var nú staddur á þessum fundi og verð að viðurkenna að það var örlítill galli á fyrirlestri Svans, skortur hans á tilvísunum.

Að sama skapi ber á skorti á tilvísunum á heimasíðu Res extensa eins og lofað var.

Annars var þessi kappi bara fjörugur og gerði fundinn skemmtilegan. Frábærast var sennilega þegar að hann fór að tína upp persónulegt dæmi og benti á parið með barnið. Höfðar til tilfinninga en hefur ekkert með raunveruleikann að gera.

Jón Magnús - 23/11/07 12:10 #

Jú, það er hægt að taka undir það að það hefði þaggað niðrí þessum gagnrýnisröddum ef Svanur hefði verið með heimildarskrá.

Það er samt skrítið með þá sem voru að heimta þessar heimildir og aðhyllast þá skoðun að bólusetningar séu skaðlegar að þeir falla eiginlega í sömu gryfju og sköpunarsinna þ.e. "við gagnrýnum gögnin sem þú leggur fram og segjum að það er ekkert að marka þau" en koma aldrei með neitt sem styður þeirra fullyrðingar. Þetta fólk veit ekki hvað vísindalega vinnubrögð ganga út á eins og augljóst var með þennan mann sem kunni enga mannasiði, vitnaði í persónulega reynslu fólks og dróg allt í efa en lagði ekkert fram sjálfur.

Það er auðveldlega hægt að afgreiða þannig menn sem samsæriskenningasmiði og kuklara.

Matti - 23/11/07 13:11 #

Já, hugsanlega átti Svanur ekki von á svona gagnrýni, en hann hefði mátt vera með vísanir á einhverjar rannsóknir tilbúnar. Vonandi setja þeir ítarefni fljótlega á síðu Res Extensa.

Mér fannst hann líka tala of mikið út frá glærunum, þ.e.a.s. nær allur hans texti var á glærunum. Ég er hrifnari af því að glærur innihaldi bara helstu punkta og framsögumenn ræði svo í kringum þá.

Kalli - 23/11/07 14:53 #

Af minni reynslu í sagnfræðiskor kvíður flesta fyrir að halda framsögur. Kannski ekki skrítið; þjálfunin í framsögum er að halda framsögur. Finnst að það mætti vera lítið hentugt valfag (og kannski er það til) þar sem kennt er að halda framsögur og fyrirlestra.

Örugglega flestir sem myndu forðast það en ég held að þetta sé ótrúlega gagnlegt. Ég svitna sjálfur af skömm þegar ég hugsa til sumra framsagna sem ég hef haldið.

En með flassið... flott mynd :) Er SB600 alveg málið? Mér sýnist pointless að kaupa SB400 en er óþarfi að fara í SB800 miðað við SB600? Verðmunurinn er ekki lítill...

Matti - 23/11/07 15:13 #

Fáðu þér SB-600, SB-800 er öflugra og meðal þeirra kosta sem það hefur er að með SB-800 getur þú fjarstýrt öðrum flössum (SB-600 og SB-800). D40 getur ekki fjarstýrt flössum með innbyggða flassinu eins og D70, D80 og D200 (og D300).

Það er óskaplega gaman að fjarstýra flössum, en það gerði ég á þessari mynd. Til að fjarstýra flassi með D40 þarftu semsagt annaðhvort að nota SB-800 á vélinni eða vera með SU-800

Ég er samt að spá í að fjárfesta í SB-800 bráðlega, aðallega vegna þess að mér langar í fleiri flöss. En fyrst ætla ég að kaupa mér stand fyrir flassið og regnhlíf.

Halli - 24/11/07 08:30 #

Sammála Lárus P. Hagaðu þér almennilega.

Heiða María - 24/11/07 08:44 #

Sæll, heyrði einmitt af þessum bandbrjálaða manni. Ef ekkert kemur bráðlega inn á vef Res Extensa skal ég reyna að hnippa í stjórnina. Spái því að þetta komi eftir helgi.

Matti - 24/11/07 12:04 #

Sammála Lárus P. Hagaðu þér almennilega.

Hvað ertu að tala um?