Dótadagur

Ég fór í Beco og keypti afmælisgjöfina mína eftir vinnu. Gjöfina prófaði ég þegar ég kom heim og notaði þegar ég tók þessar myndir.

Áróra og GyðaKollaInga María

Hver sér hvað ég keypti? Það er reyndar frekar augljóst ef rýnt er í myndirnar, ljósmyndanördar ættu að sjá þetta strax.

26.11.2007 21:30 græjur
Athugasemdir

Kalli - 26/11/07 22:11 #

Hlýtur að hafa eitthvað með lýsingu að gera. Flott myndbygging í myndinni af mæðgunum.

Matti - 26/11/07 22:13 #

Mikið rétt, þetta tengist lýsingu en er þó ekki ljós.

Kalli - 26/11/07 22:16 #

Uss, ég er svo mikill amatör... get í besta falli giskað út í loftið að þú hafir keypt þér eitthvað tjald eða eitthvað sem mýkir flassið.

Matti - 26/11/07 22:19 #

Jamm, það er ekki margt eftir. Ég keypti semsagt stand (fót) fyrir flassið, millistykki og regnhlíf.




ath. póstfangið birtist ekki á síðunni

má sleppa

(næstum öll html tög virka, einnig er hægt að nota Markdown rithátt)


Athugið að það getur tekið um mínútu að setja athugasemd inn, sýnið biðlund.
Mynd sem Kolla teiknaði af mér

Nýjar athugasemdir

www.flickr.com