Skömm mín er alger, ég blygðast mín fullkomlega. Fyrirgefið mér, ó gerið það, fyrirgefið mér.
Ég er búinn að setja nagladekkin undir bílinn minn.
Hvítur karlmaður á litlum jeppa á nagladekkjum. Er hægt að komast lægra en það í samfélaginu í dag. Næst þarf ég bara að sparka í gamalmenni og tala illa um biskupinn. Nei, tala illa um gamalmenni og sparka í biskupinn. Helvítis gamalmenni.
Hvítur karlmaður á stórum jeppa á nagladekkjum ?
Má ég spyrja, hví þarft þú nagladekk? (eða jeppa yfir höfuð). Það er þó að minnsta kosti gott að þú hafir húmor fyrir þessu... hehe
Ég þarf jeppa til að komast upp í bústað, síðustu kílómetrana. Við ákváðum að fjárfesta í jeppa til að komast í bústað - það var leiðinlegt að keyra síðasta spottann í fólksbíl, ómögulegt ef það hafði snjóað.
Nagladekkin fylgdu með bílnum - ég tími ekki að kaupa mér ný vetrardekk þar sem þau kosta hellings pening. Þegar ég þarf að endurnýja kaupi ég ekki nagladekk.
Mundu bara það sem Stephen Fry sagði um það að sparka í fólk: „Never put all your legs in one bastard.“ :)
|
www.flickr.com
|