Fimleikar og fleira

Inga MaríaByrjuðum daginn í Versölum í Kópavogi á nemendasýningu hjá Gerplu. Inga María var þar að sýna listir sínar. Henni hefur farið mikið fram enda á hún afskaplega auðvelt með fimleikana.

Eftir sýningu fengu aðstandendur að leika sér í tækjunum. Ég lét það eiga sig og tók myndir en Gyða og Kolla léku listir sínar. Inga María á jafnvægisslá

Ég tók semsagt helling af myndum. Vann þær á hundavaði þannig að litir eru frekar misjafnir. D200 vélin er ekkert sérstök á háu iso, ég væri alveg til í að prófa svona myndatöku með D3 :-)

Skellti mér í laugardagsboltann og spriklaði dálítið, gerði svosem ekkert sérstakt í boltanum í kvöld. Kom við í Krónunni á heimleiðinni og verslaði í kvöldmatinn, greip Mannlíf í leiðinni. Þar er semsagt smá umfjöllun mig mig með ágætri mynd. Verst ég gleymdi að greiða mér fyrir myndatökuna.

15.12.2007 23:10 dagbók
Athugasemdir



ath. póstfangið birtist ekki á síðunni

má sleppa

(næstum öll html tög virka, einnig er hægt að nota Markdown rithátt)


Athugið að það getur tekið um mínútu að setja athugasemd inn, sýnið biðlund.
Mynd sem Kolla teiknaði af mér

Nýjar athugasemdir

www.flickr.com