Óskaplega er vandræðalegt að fylgjast með frjálshyggjumönnum reyna að réttlæta ráðningu Þorsteins Davíðssonar þrátt fyrir að þrír umsækjendur hafi verið metnir mun hæfari en hann.
Ekki reyna að halda því fram að þessir sömu frjálshyggjumenn væru ekki brjálaðir ef einhver annar flokkur hefði skipað sinn einstakling í opinbera stöðu á sambærilegum forsendum. Eflaust væri sá flokkur að verja ráðninguna með svipuðum hætti.
Pólitíkin hér á landi er vandræðalegur viðbjóður.
Pétur Tyrfingsson tjáir sig af viti um málið.
|
www.flickr.com
|