Örvitinn

Tognun

Mikið óskaplega er ég þreyttur á því að togna í kálfa. Tognaði í boltanum í hádeginu, hélt áfram eins og asni og er því frekar slæmur núna.

Í þetta skipti þarf ég að drífa mig í sjúkraþjálfun og reyna að koma í veg fyrir að þetta endurtaki sig ítrekað.

heilsa
Athugasemdir

sirry - 10/01/08 08:48 #

Æji ekki gott að heyra. Um að gera að reyna að koma í vegfyrir þetta. Ertu að teygja nógu vel á kálfanum miðað við hvað hann er slappur ??

Matti - 10/01/08 10:05 #

Eflaust er ég ekki að hita nógu vel upp og ég er afskaplega latur við að teygja. Aftur á móti eru þetta svo þrálát meiðsli að ég held ég þurfi að gera eitthvað meira í þessu.

Núna þarf ég a.m.k. að hvíla í einhvern tíma, a.m.k. viku.

Helgi Briem - 12/01/08 12:59 #

Ekki teygja fyrir leik, Matti. Rannsóknir hafa sýnt að teygjur fyrir æfingu auka líkurnar á tognun, en minnka þær ekki eins og þjóðtrú var.

Það eina sem minnkar líkur á vöðvatognun er styrking vöðvanna sem um ræðir.

Teygjur á vöðva eftir að hann hefur verið æfður auka harðsperrur en minnka þær ekki. Ef maður vill teygja vöðva til að auka hreyfigetu hans á að gera það á öðrum tímum.

Upphitun er hins vegar af hinu góða.

Matti - 14/01/08 09:40 #

Takk Helgi.

Ég þarf að fara að lyfta og styrkja kálfana (og aðra vöðva).

Verst er að stundum hef ég verið að finna fyrir verkjum við þær æfingar. Þarf að passa mig á að taka ekki of miklar þyngdir, a.m.k. til að byrja með.

Jón Magnús - 14/01/08 09:58 #

Já þetta eru merkilegar fréttir. Kollvarpar fyrri hugmyndum mínum um teygjur. Ég fór að lesa á wiki um þetta eftir að þú sagðir þetta Helgi og þar er vísað í nokkrar rannsóknir svo þú ert ekki alveg í "ruglinu" :)

Ég þarf að athuga þetta og prófa að breyta upphitunar-rútínunni minni.