Ræktin í hádeginu

Það skal fært til bókar að ég fór í ræktina í hádeginu. Hitaði upp á æfingahjóli og lyfti svo lóðum. Er nokkuð góður í kálfanum en ætla að sleppa boltanum á morgun, skelli mér í fótbolta á föstudaginn.

Það er aftur á móti engin ástæða til að taka það fram að þetta er í fyrsta skipti sem ég mæti í ræktina á árinu. Um slíkt ræðum við ekki hér. Mér finnst bara óþarfi að vera eitthvað að þvælast fyrir janúarfólkinu. Það hlýtur að fara að fá leið á þessu sprikli. Reyndar var ekkert fjölmennt í Laugum í hádeginu í dag.

Ég uppfærði þyngdargrafið í morgun - fyrir þá sem hafa brennandi áhuga á því.

15.01.2008 13:37 dagbók
Athugasemdir



ath. póstfangið birtist ekki á síðunni

má sleppa

(næstum öll html tög virka, einnig er hægt að nota Markdown rithátt)


Athugið að það getur tekið um mínútu að setja athugasemd inn, sýnið biðlund.
Mynd sem Kolla teiknaði af mér

Nýjar athugasemdir

www.flickr.com