Örvitinn

Sumum finnst gaman að versla

Nei, ég ætla ekkert að gagnrýna Gyðu fyrir að fara á útsölu, þær mega alveg dunda sér við það mæðgurnar.

Sumir samborgara okkar hafa gaman að því að fara í búðir og versla, jafnvel þó þeir hafi ekki efni á því. Þá er hægt að fá "lánað" greiðslukort og eyða af kappi.

Aðrir eru meira í því að brjótast inn og berja menn með hafnaboltakylfum.

Ég verð að játa að ég verð dálítið svekktur út í lögregluna eftir að lesa fyrri dóminn. Að mínu mati er ljóst að þeir hefðu mátt gera miklu betur við rannsókn okkar máls. Ég hefði talið eðlilegt að athuga strax hvort þessi manneskja væri byrjuð að versla þegar hún hafði verið handtekin fyrir innbrot og tilraun til fjársvika, ekki láta aðra um að upplýsa þann þátt málsins nokkrum dögum og einhverjum milljónum (væntanlega) síðar.

dylgjublogg
Athugasemdir

Óli Gneisti - 20/01/08 17:26 #

Þarna inni er meðal annars líkamsárás á einn frænda minn.