Örvitinn

Mitt álit

Það hefur ýmislegt gerst síðustu daga, sviptingar í pólitík, heimskreppa yfirvofandi og landinn fer á taugum út af handbolta. Ég hef ekki tjáð mig síðustu daga af ótta við að hafa áhrif á atburðarrásina.

Fjöldi lesenda hefur haft samband við skrifstofuna og heimtað opinbera ályktun og því er ekki annað hægt en að verða við því.

Hvað finnst mér um að Íslamskir öfgamenn hafi steypt borgarstjórn til þess að grafa undan handboltalandsliðinu með það að markmiði að gera Exista gjaldþrota (og hafa þannig af mér stórfé*) - tengjast eigendur Liverpool málinu - drápu þeir Jokerinn?

Kolla tæplega eins mánaða

Mér finnst þetta krúttleg mynd af Kollu tæplega eins mánaða. Svona er myndin næstum beint úr gömlu Olympus C-2000 myndavélinni en áðan prófaði ég að fikta í litum. Var orðinn sáttur við útkomuna eftir smá kúrfufikt en prófaði þá að draga úr gulum og grænum - viti menn - myndin batnaði við það.

Ég þarf bara að gera það að reglu að draga úr gulum og grænum í lokin og sjá hvort myndir skána við það.

Íslam, Liverpool og Exista: Helvítis rugl.

* Kannski ekki stórfé, en eitthvað smá.

Ýmislegt